ÖKUKENNSLA – ÖKUSKÓLI – AKSTURSMAT – BIFHJÓLAKENNSLA – BMW ÖKUKENNSLA - ÆFINGAAKSTUR – ÖKUNÁM – MÓTORHJÓLAKENNSLA – ÖKUTÍMAR
Viltu læra á bíl eða mótorhjól (bifhjól, skellinöðru, vespu) eða taka kerrupróf á kerru þyngri en 750kg eins og til dæmis hestakerrur og vélsleðakerrur.
Ég heiti Þórður Bogason og útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands 1998 sem ökukennari. Ég kenni á BMW X 3 og bíllinn er auðþekkjanlegur á númeraplötunni.
Er að kenna á höfuðborgarsvæðinu, en hef kennt nemendum suður með sjó og nokkrum fyrir austan fjall.
Kenni í ökuskólanum í Mjódd, bóklegt nám fyrir bílpróf, bifhjól, létt bifhjól og sérstakt námskeið vegna sviptingar.
Ég kenni á líka á bifhjól og létt bifhjól. Þú getur haft samband í síma 894 7910 eða með tölvupósti thboga@simnet.is
